|
14.10.2008 21:01:48 / rakel
ég ætlaði að fara að skella inn smá bloggi og myndum, en hvernig á ég að gera það þ.e. að setja inn myndir með blogginu? Kveðja Rakel J p.s. ég stalst til að nota aðgangsorðið þitt Rakel St
»
15.09.2008 15:10:23 / fannygudbjorg
Hvað segið þið um þetta?
Er partý feelingur í liðinu svona í byrjun haustsins eða þegar lengra líður?
Smá hugmynd
1: hittast, drekka og hlægja 2: hittast fljúga til Valencía á spáni, drekka og hlægja 3: vera heima hjá ykkur ein í volæði, engin hlátur og vatn í krananum.
»
22.07.2008 13:40:02 / fannygudbjorg
Sæl veriði. Hún Olla varð frú á laugardaginn síðasta, 19.júlí n.t. Ekki annað hægt en að stela einni mynd og sýna ykkur. Svo falleg hjónin!  Svo aðrar góðar fréttir fyrir okkar góða árgang. Grétar og Bella hafa gefið syni sínum nafn. Hann heitir Agnar Óli.  Ég beið eftir nafninu, var viss um að það yrði Sveinn. Það hefði verið kostulegt því nöfn okkar afkomenda eru frekar einsleit  Falleg nöfn á börnin samt sem áður! Aron Elí Aron Fannar Andri Freyr Andri Már Heimir Már Sveinn Ingi og svo næstum Sveinn Grétarsson sem varð svo Agnar  Svo eigum við orðið svo mikið af börnum svo sem, get varla talið það upp! Fréttaskot! En ein frétt sem ég heyrði á Sigló er sú að Bylgja Bjarnadóttir er flutt á Ólafsfjörð og er ófrísk. Rakel Jónasar gengur næst í það heilaga, 1. sept minnir mig. Og Gústi er flottur á Sigló, heillandi dömurnar á mótorhjólinu sínu. Ég held ég viti bara ekki meir. Hafið þið eitthvað í fréttum?
»
16.07.2008 20:32:50 / Sigga
Ég vil byrja á því að samhryggjast Ella og hans fjölskyldu á erfiðum tíma þeirra.
Sent verður samúðargjöf til þeirra í okkar nafni og vil ég byðja þá sem að vilja taka þátt í því að senda mér skilaboð með nafni í síma 8577317
Kv. Sigga
»
14.07.2008 10:02:06 / fannygudbjorg
"Þessi fyrrum frammari gleður grafavogsbúa með þokkafullum hreyfingum og er það draumi næst að sjá stælta leggi hans á hlaupum fram og til baka um völlinn og hárið blaktandi í vindingum. Algjört augnakonfekt." Þetta eru línur í nýjasta Séð og heyrt blaði þar sem listaðir eru upp kynþokkafyllstu fótboltamenn okkar Íslendinga. Að sjálfsögðu á ´81 árgangur frá Sigló einn slíkann. Þetta er að sjálfsögðu Ómar Hákonarson einbeittann í baráttu við Tryggva gamla. Takið sérstaklega eftir stæltu fótleggjunum.  Svo eru Saving Iceland aularnir komnir á ferð á ný. Spurning hvort annar okkar félagi úr ´81 fari að ljá fjölmiðlum rödd sína
»
07.07.2008 14:18:33 / fannygudbjorg
Þúsund þakkir fyrir frábæra skemmtun.
Þetta var snilld frá A-Ö. Helgi massífur á grillinu, gestgjafarnir Sigga og Hilli alveg að standa fyrir sínu og fara greinilega létt með þetta. Fingur í kross að þau bjóði okkur aftur að ári, það væri ekki leiðinlegt.
Hlakka til að sjá myndir frá ykkur sem munduð eftir myndarvél.
Kveðja. Fanný
»
03.07.2008 00:39:03 / Sigga
Hvenar eigum við starta þessu, vorum við eitthvað búin að tala um það. Ég mundi helst vilja byrja fyrr heldur en seinna svo að fólk fái að njóta sólar á pallinum mínum ef hún mætir á svæðið en það sloknar á henni hjá mér á slaginu sjö.
»
30.06.2008 16:38:06 / Sigga
Jæja nú eru bara nokkrir dagar til stefnu og vonandi eru allir að verða spenntir  En það sem komið er Sigga, Rakel J og Fanný með kjöt Olla með sósur og fl. Óli kemur með vodkað í bolluna og fínt er ef hann kæmi með blandið í hana líka. Svo bara ef restin komi með sallat, kartöflur, drykki áfenga og óáfenga. Og þeir sem að ætla að fá sér slatta í tána komi með sitt eigið. Annars langar mig að vita hvort að fólk sé tilbúið til að hittast við torgið kl: 12 og sprella aðeins og þá er möst að koma í góðum skóm sem gerir fólk hreyfanlegt  Ég er búin að hafa smá áhyggjur af veðri þar sem að það er búið að vera vibbi hér á norðurslóðum en það lítur út fyrir að veðurguðirnir ætli að vera okkur hliðhollir um helgina því það er bara sól og hiti í kortunum  En við sjáumst um helgina í góða skapinu
»
30.06.2008 11:22:32 / fannygudbjorg
Sæl. Deili hérna með ykkur mynd af Grétari og syninum. Glöggir lesendur taka eftir því að drengurinn er í bleiku... endilega commentið á það. Er feminista að finna á meðal okkar?
»
24.06.2008 11:48:44 / fannygudbjorg
Jæja það eru tæplega tvær vikur í herlegheitin og ég er orðin spennt.
Ég ætla að rita hér upp nöfnin sem hafa gert grein fyrir sér því það er leiðinlegt að hitta einhvern eftir þetta allt saman og viðkomandi hafði ekki hugmynd af þessu.
Þið svo haldið áfram og leiðréttið og bætið við í commentum, einnig þið sem hafið ítök, hafið þá vinsamlegast samband við þá sem ekki hafa gert grein fyrir sér.
Svo er einnig spurning hvað við gerum varðandi mat, eigum við að leggja í púkk, skipta niður með okkur verkum eða bara lotterí og hver kemur með eitthvað gúmmelaði og svo verða grillrestar hjá Siggu það sem eftir er júlí... Þið tjáið ykkur um þetta.
Þeir sem vita af laugardeginum 5. júlí n.k.
Fanný, Olla, Gústi, Sigga, Rakel J, Rakel St, Óli, Ranna, Katý, Sölvi, Kall Hersteins (ég hringdi í Kalla, hann ætlar að koma), Daði, Elli, Gaui, Fannar, Lalli, Guðrún Guðgeirs.
Ábyggilega einhverjir fleiri sem vita af þessu. Endilega reynum að láta alla vita af þessu, það hefur sýnt sig að við erum ekki duglegasti árgangur þegar kemur að þessari bloggmenningu. Erum reyndar öll að koma til núna!
Hér eru nokkur nöfn sem ég hef ekki rekist á: Sævar, Bjarkey, Sólrún Helga, Ari, Grétar, ómar, Sigurjón, Guðni Geir...... svo ábyggilega fleiri.
Hlakka til að sjá ykkur og taka þátt í þessum degi með ykkur!
»
19.06.2008 20:49:22 / Sigga
»
17.06.2008 00:46:28 / Sigga
 Drengur fæddist rétt fyrir miðnætti 16.júní. Ekki veit ég lengd né þyngd. Vil ég óska þeim Grétari og Bellu innilegra hamingjuóska með strákinn
»
04.06.2008 00:06:30 / Sigga
Jæja nú er ekki nema rúmar 4 vikur í stuðið og þar sem að það er ekki mikil þátttaka í skoðanakönnuninni þá hef ég ákveðið að það sé örugglega best að þetta verði bara pálínuboð þar sem allir komi með eitthvað með sér, hvort sem það sé í fljótandi eða föstu formi og svo fá bara allir hjá öllum. Veit að Gaui var búin að skrá sig fyrir kassa. En hverjir ætla pottþétt að koma, svona svo það sé stólar fyrir alla  Látið vita af ykkur. Kv. Sigga
»
30.04.2008 14:21:58 / fannygudbjorg
Sæl öll sömul. Til hamingju með 13 ára fermingarafmæli í dag. Það var einmitt í síðustuviku í vinnunni hjá mér fermingarþema, þá komu flestir með fermingarmyndirnar í vinnuna, myndunum var svo stækkuð of mikið og styllt upp á kaffistofunni. Hér er mín mynd...  Ég vil fá sérstakt hrós fyrir að hafa þorað þessu og jafnframt skora á ykkur hin að fylgja í kjölfarið næstu vikur og setja ykkar fermingarmynd hér inn. Til hamingju með daginn... Kv. Fanný P.s. synd að hafa sett inn færslu svona strax á eftir Rakeli Steinars sem loksins fann lykilorðið sitt  sjáið hennar færslu hér fyrir neðan.
»
29.04.2008 02:00:39 / rakel
Hæ Hæ allir...
Langaði að prófa að setja inn eitt blogg eða svo... Kem ekkert rosalega oft hér inn en nú verður breyting á heheh
Maður er orðin svo mikið tölvunerd komin með space og facebook þá verð ég að fá að vera memm hér líka er haggi????
En annars er bara allt ljómandi gott að frétta af mér og mínum 
Vinna,sofa og éta maður gerir víst lítið annað og jú nýja áhugamálið fartölvan hahhahah (Kann samt ekkert á svona sko)
En já ég er sko til í pallapartýið sign me up
fyrsta bloggið verður því miður ekki lengra.....
Kossar og knús frá Röggu Rús 
»
Síður: 1 2 3 4
|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 23758
|